Nokia 8800 Sirocco Edition - Öryggisatriði

background image

Öryggisatriði

Lesið þessar einföldu leiðbeiningar. Sé þeim ekki fylgt getur það verið hættulegt
eða varðað við lög. Lesa skal alla notendahandbókina til að fá nánari upplýsingar.

ÖRYGGI ÞEGAR KVEIKT ER Á TÆKINU

Ekki kveikja á símanum þar sem notkun þráðlausra síma er bönnuð
eða þar sem hún kann að valda truflunum eða hættu.

UMFERÐARÖRYGGI GENGUR FYRIR

Fara skal að öllum staðbundnum lögum. Ætíð skal hafa hendur
frjálsar til að stýra ökutækinu við akstur. Umferðaröryggi skal
ganga fyrir í akstri.

TRUFLUN

Allir þráðlausir símar geta verið næmir fyrir truflunum, sem getur
haft áhrif á virkni þeirra.

SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM Á SJÚKRASTOFNUNUM

Virða skal allar takmarkanir. Slökkva skal á símanum nálægt
lækningabúnaði.

HAFA SKAL SLÖKKT Á SÍMANUM Í FLUGVÉLUM

Virða skal allar takmarkanir. Þráðlaus tæki geta valdið
truflunum í flugvélum.

SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM ÁÐUR EN ELDSNEYTI ER TEKIÐ

Ekki nota símann nærri eldsneytisdælu. Notist ekki í námunda
við eldsneyti eða sterk efni.

SLÖKKVA SKAL Á SÍMANUM ÞAR SEM VERIÐ ER AÐ SPRENGJA

Virða skal allar takmarkanir. Ekki nota símann þar sem verið er
að sprengja.

NOTIST AF SKYNSEMI

Notist aðeins í hefðbundinni stöðu eins og lýst er í leiðbeiningum
með vörunni. Forðast skal óþarfa snertingu við loftnetið.

VIÐURKENND ÞJÓNUSTA

Aðeins viðurkennt starfsfólk má setja upp eða gera við þessa vöru.

AUKAHLUTIR OG RAFHLÖÐUR

Aðeins má nota samþykkta aukahluti og rafhlöður. Ekki má tengja
saman ósamhæf tæki.

background image

Ö r y g g i s a t r i ð i

7

VATNSHELDNI

Símtækið er ekki vatnshelt. Halda skal því þurru.

ÖRYGGISAFRIT

Muna skal að taka öryggisafrit eða halda skrá yfir allar mikilvægar
upplýsingar sem geymdar eru í símanum.

TENGING VIÐ ÖNNUR TÆKI

Þegar tækið er tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók með
því vandlega, einkum upplýsingar um öryggi. Ekki má tengja
saman ósamhæf tæki.

NEYÐARSÍMTÖL

Tryggja skal að kveikt sé á símanum og hann sé virkur. Styddu
á hreinsa eins oft og þarf til að hreinsa skjáinn og hverfa aftur
að upphafsskjánum. Færðu inn neyðarnúmerið og styddu svo
á hringitakkann. Gefa skal upp staðarákvörðun. Ekki má slíta
símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.

Um tækið

Þráðlausi síminn sem lýst er í handbókinni er samþykktur til notkunar á
EGSM 900, GSM 1800 og 1900 símkerfum. Þjónustuveitan gefur nánari
upplýsingar um símkerfi.

Í tækinu fer saman frábær hönnun og flókin tækni. Ytra byrði þess er úr
ryðfríu stáli og skjágler þess hefur mikla mótstöðu fyrir rispum. Fara ber
varlega með tækið.

Hlíta skal öllum lögum og virða einkalíf og lögbundin réttindi annarra við
alla notkun þessa tækis, þar á meðal höfundarrétt.

Þegar myndir eða myndinnskot eru tekin eða notuð skal fylgja öllum lögum
og virða staðbundna siði auk einkalífs og lögbundinna réttinda annarra.

Viðvörun: Við notkun allra aðgerða í þessu tæki, annarra en vekjara,
þarf að vera kveikt á tækinu. Ekki skal kveikja á tækinu þegar notkun
þráðlausra tækja getur valdið truflun eða hættu.

Sérþjónusta

Ef nota á símann verður áskrift að þjónustuveitu fyrir þráðlausa síma að vera
fyrir hendi. Margar aðgerðir í þessu tæki eru háðar því að aðgerðir í þráðlausa
símkerfinu virki. Þessi sérþjónusta er hugsanlega ekki fyrir hendi í öllum
símkerfum eða þörf getur verið á sérstökum ráðstöfunum hjá þjónustuveitunni

background image

Ö r y g g i s a t r i ð i

8

áður en hægt er að nota sérþjónustu. Þjónustuveitan getur þurft að gefa
viðbótarfyrirmæli um notkun og útskýra hvaða gjöld eiga við. Sum símkerfi geta
verið með takmörkunum sem hafa áhrif á hvernig hægt er að nota sérþjónustu.
Sum símkerfi styðja t.d. ekki alla séríslenska bókstafi og þjónustu.

Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar aðgerðir væru hafðar óvirkar
eða ekki gerðar virkar í tækinu. Ef svo er birtast þær ekki í valmynd tækisins.
Tækinu kann einnig að hafa verið sérstaklega samskipað. Slík stilling gæti falið
í sér breytingar á nöfnum í valmynd, uppröðun í valmyndum og táknum.
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.

Þetta tæki styður WAP 2.0 samskiptareglur (HTTP og SSL) sem keyra á TCP/IP
samskiptareglum. Fyrir sumar aðgerðir í tækinu, líkt og textaskilaboð,
margmiðlunarboð, spjallskilaboð, tölvupóst, internetþjónustu, niðurhal efnis og
samstillingu við internetmiðlara, þarf símkerfisstuðning fyrir viðkomandi tækni.

Samnýtt minni

Eftirfarandi aðgerðir í þessu tæki geta samnýtt minni: tengiliðir, texta- og
spjallskilaboð, tölvupóstur, raddmerki, dagbók, verkefni, Java

TM

leikir og forrit,

sem og minnismiðaforrit. Notkun einnar eða fleiri þessara aðgerða getur
minnkað tiltækt minni fyrir aðrar aðgerðir sem samnýta minni. Til dæmis getur
vistun margra Java-forrita notað allt tiltækt minni. Tækið getur birt boð um að
minnið sé fullt þegar reynt er að nota aðgerð sem notar samnýtt minni. Þá skal
eyða einhverjum upplýsingum eða færslum sem eru geymdar í aðgerðunum sem
samnýta minni áður en haldið er áfram. Sumar aðgerðirnar, svo sem Java-forrit,
geta fengið tiltekið magn af minni úthlutað í viðbót við minni sem er samnýtt
með öðrum aðgerðum.

Athugið að gallerískrár samnýta annars konar minni. Nánari upplýsingar er
að finna í „Gallerí” á bls. 68.

Aukahlutir

Nokkur holl ráð varðandi fylgibúnað og aukahluti:

Alla aukahluti og fylgibúnað skal geyma þar sem lítil börn ná ekki til.

Þegar aukahlutur eða fylgibúnaður er tekinn úr sambandi skal taka í klóna,
ekki leiðsluna.

Athuga skal reglulega hvort aukahlutir fyrir bíla séu vel festir og vinni rétt.

Uppsetningu flókinna aukahluta í bíla skal fela fagmönnum.

background image

A l m e n n a r u p p l ý s i n g a r

9