Nokia 8800 Sirocco Edition - Rafhlaðan hlaðin

background image

Rafhlaðan hlaðin

Viðvörun: Aðeins skal nota rafhlöður, hleðslutæki og aukahluti sem
Nokia hefur samþykkt til nota með þessari tilteknu tegund. Ef notaðar
eru aðrar gerðir gæti öll ábyrgð og samþykki fallið niður og slíkri
notkun getur fylgt hætta.

Athuga ber tegundarnúmer hleðslutækja áður en þau eru notuð með þessu tæki.
Þetta tæki er ætlað til notkunar þegar það er hlaðið orku frá AC-3 hleðslutæki.

Seljandi símans veitir upplýsingar um fáanlega aukahluti sem samþykktir eru
til notkunar.

Stingdu snúru hleðslutækisins í samband
neðst á símanum.

Stingdu hleðslutækinu í samband
við innstungu.

Ef rafhlaðan er alveg tæmd geta liðið
nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn
birtist á skjánum eða þar til hægt er
að hringja.

Hleðslutíminn fer eftir hleðslutækinu og rafhlöðunni. Það tekur
t.d. um þrjár klukkustundir að hlaða BP-6X rafhlöðu með AC-3
hleðslutæki þegar síminn er í biðham.

background image

S í m i n n t e k i n n í n o t k u n

17