
■ Skeiðklukka
Hægt er að taka tíma, millitíma eða hringtíma með skeiðklukkunni.
Hægt er að nota aðrar aðgerðir símans meðan verið er að mæla
tímann. Til að láta skeiðklukkuna halda áfram í bakgrunni skaltu
styðja á hætta-takkann.

S k i p u l e g g j a r i
80
Notkun skeiðklukkunnar eða keyrsla hennar í bakgrunni meðan aðrar aðgerðir
eru notaðar krefst aukinnar rafhlöðuorku og minnkar endingu rafhlöðunnar.
Veldu Valm. > Skipuleggjari > Skeiðklukka og úr
eftirfarandi valkostum:
Millitímar — til að taka millitíma. Veldu Byrja til að hefja tímatökuna.
Veldu Millitími þegar taka á millitíma. Til að stöðva tímatökuna skaltu
velja Stöðva. Veldu Vista til að vista tímatökuna. Til að hefja tímatökuna
aftur skaltu velja Valkost. > Byrja. Nýja tímanum er bætt við fyrri
tímann. Til að núllstilla tímann án þess að vista hann skaltu velja
Valkost. > Núllstilla. Til að láta skeiðklukkuna halda áfram í bakgrunni
skaltu styðja á hætta-takkann.
Hringtímar — til að taka hringtíma. Til að láta skeiðklukkuna halda
áfram í bakgrunni skaltu styðja á hætta-takkann.
Halda áfram — til að skoða tímann sem þú hefur fært í bakgrunninn.
Sýna síðasta — til að skoða nýjustu tímatökuna ef skeiðklukkan hefur
ekki verið núllstillt.
Skoða tíma eða Eyða tímum — til að skoða eða eyða vistuðum tímum.

F o r r i t
81