Nokia 8800 Sirocco Edition - Verkefnalisti

background image

Verkefnalisti

Til að vista minnispunkt fyrir verkefni skaltu velja Valm. >
Skipuleggjari > Verkefnalisti.

Til að búa til minnispunktinn skaltu velja Bæta v.; annars velurðu
Valkost. > Bæta við. Ritaðu minnispunktinn og veldu forgang hans,
lokadagsetningu, tegund áminningar og síðan Vista.

Ef þú vilt skoða minnispunkt skaltu skruna að honum og velja Skoða.

Einnig geturðu valið að eyða völdum minnispunkti og eytt öllum
minnispunktum sem merktir hafa verið sem lokið. Hægt er að raða
minnispunktum eftir forgangi eða lokadagsetningu, senda þá í annan
síma sem textaskilaboð eða margmiðlunarskilaboð, vista þá í dagbók
eða opna dagbókina.

Meðan minnispunktur er skoðaður er einnig hægt að velja að breyta
lokadagsetningu eða forgangi á völdum minnispunkti eða merkja
að minnispunktinum sé lokið.