Nokia 8800 Sirocco Edition - Vottorð 

background image

Vottorð

Mikilvægt: Þó að notkun vottorða dragi verulega úr þeirri áhættu sem
fylgir fjartengingum og uppsetningu hugbúnaðar verður að nota þau
rétt svo að aukið öryggi fáist. Tilvist vottorðs er engin vörn ein og sér.

Vottorðastjórinn verður að vera með rétt, sannvottuð eða tryggileg vottorð svo
að aukið öryggi fáist. Vottorð eru bundin tilteknum tíma. Ef textinn Útrunnið
vottorð eða Ógilt vottorð birtist þó að vottorðið ætti að vera gilt skal athuga
hvort rétt dag- og tímasetning er á tækinu.

Áður en vottorðsstillingum er breytt þarf að ganga úr skugga um að
örugglega megi treysta eiganda þess og að það tilheyri í raun eigandanum
sem tilgreindur er.

Til eru þrenns konar vottorð: vottorð miðlara, heimildarvottorð og
notandavottorð. Þú gætir fengið þessi vottorð hjá þjónustuveitunni.
Vera kann að þjónustuveitan visti heimildarvottorðin og
notandavottorðin í öryggiseiningunni.

Til að skoða lista yfir heimildar- og notandavottorð sem hlaðið
hefur verið niður í símann skaltu velja Valm. > Stillingar >
Öryggisstillingar > Heimildavottorð eða Notandavottorð.

background image

V e f u r

90

Öryggisvísirinn

birtist meðan tenging er virk ef gagnaflutningur

milli símans og efnismiðlarans er dulritaður.

Öryggistáknið sýnir ekki að gagnasendingin milli gáttarinnar og efnisþjónsins
(eða staðarins þar sem umbeðin tilföng eru geymd) sé örugg. Þjónustuveitan
tryggir gagnasendinguna milli gáttarinnar og efnisþjónsins.