Nokia 8800 Sirocco Edition - Pakkagögn, HSCSD og CSD

background image

Pakkagögn, HSCSD og CSD

Hægt er að nota pakkagagna-, HSCSD- (high-speed circuit switched
data) og CSD-þjónustur (circuit switched data, GSM-gögn) í símanum.
Símafyrirtækið eða þjónustuveitan gefur upplýsingar um framboð og
áskrift að gagnaþjónustum.

Notkun á HSCSD-þjónustu eyðir rafhlöðunni hraðar en í venjulegum
símtölum eða gagnahringingum. Það getur því þurft að tengja símann
við hleðslutæki á meðan gagnaflutningur fer fram.

Sjá „Pakkagögn” á bls. 60.