Nokia 8800 Sirocco Edition - Sannprófun á rafhlö²um frá Nokia

background image

Sannprófun á rafhlöðum frá Nokia

Notaðu alltaf rafhlöður frá Nokia til að tryggja öryggi þitt. Til að tryggja að þú
fáir rafhlöður frá Nokia skaltu kaupa þær hjá viðurkenndum söluaðila Nokia,
ganga úr skugga um að „Nokia Original Enhancements“ táknið sé á umbúðunum
og skoða heilmyndarmiðann á eftirfarandi hátt:

Þó svo að þessum fjórum skrefum sé fylgt nákvæmlega er það ekki fullkomin
trygging fyrir því að rafhlaðan sé sannvottuð. Ef þú hefur minnstu ástæðu til að
ætla að rafhlaðan þín sé ekki ósvikin Nokia rafhlaða skaltu ekki nota hana heldur
fara með hana til viðurkennds þjónustu- eða söluaðila Nokia. Viðurkenndir
þjónustu- og söluaðilar Nokia kanna sannvottun rafhlöðunnar. Ef ekki er hægt
að staðfesta sannvottunina skaltu skila rafhlöðunni til verslunarinnar þar sem
þú keyptir hana.

Sannvottun heilmyndar

1. Þegar þú horfir á heilmyndina á miðanum ættirðu

að sjá Nokia-handabandstáknið frá einu sjónarhorni
og „Nokia Original Enhancements“ táknið frá öðru.

2. Þegar þú snýrð heilmyndinni til vinstri, hægri,

upp eða niður ættirðu að sjá 1, 2, 3, eða 4 punkta,
allt eftir staðsetningu hennar.

3. Skafðu hliðina á miðanum og þá á að koma

í ljós 20 stafa tala, t.d. 12345678919876543210.
Snúðu rafhlöðunni þannig að tölurnar vísi upp.
20 stafa talan byrjar í efri röðinni og heldur áfram
í neðri röðinni.

background image

U p p l ý s i n g a r u m r a f h l ö ð u

95

4. Fáðu staðfestingu á því að 20 stafa talan sé

gild með því að fylgja leiðbeiningunum á
www.nokia.com/batterycheck.

Hægt er að senda staðfestingarbeiðni í textaboðum með því að slá inn 20 stafa
töluna, t.d. 12345678919876543210, og senda á númerið +44 7786 200276.

Til að búa til textaskilaboð,

Fyrir Asíulönd við Kyrrahaf, að Indlandi undanskildu: Sláðu inn 20 stafa
töluna, t.d. 12345678919876543210, og sendu hana á +61 427151515.

Aðeins fyrir Indland: Sláðu inn „Battery“, þá 20 stafa töluna,
t.d. Battery 12345678919876543210, og sendu hana á 5555.

Gjaldskrá innlendra og erlendra símafyrirtækja gildir.

Þá áttu að fá skilaboð sem segja til um hvort hægt er að sannvotta töluna
eða ekki.

Hvað ef rafhlaðan er ekki ósvikin?

Ef þú getur ekki staðfest að Nokia-rafhlaðan með heilmyndinni á miðanum
sé ósvikin Nokia-rafhlaða skaltu ekki nota rafhlöðuna. Farðu með hana til
næsta viðurkennda þjónustuaðila eða sölustaðar Nokia til að fá aðstoð.
Notkun rafhlaða sem eru ekki samþykktar af framleiðanda getur verið hættuleg.
Hún getur jafnframt leitt til þess að tækið og aukahlutir þess virki ekki sem skyldi
eða skemmist. Notkun þeirra kann jafnframt að ógilda allar þær samþykktir eða
ábyrgðir sem eiga við tækið.

Nánari upplýsingar um ósviknar Nokia-rafhlöður er að finna á
www.nokia.com/battery.