■ Biðhamur
Síminn er í biðham þegar hann er tilbúinn til notkunar en engir stafir
eða tölur hafa verið slegnar inn.
• Heiti símkerfis eða tákn símafyrirtækis (1)
• Sendistyrkur farsímakerfisins (2)
• Hleðsla rafhlöðu (3)
• Virkni vinstri valtakkans er annaðhvort Flýtival
(4) eða að vera flýtivísir fyrir aðra aðgerð.
Sjá „Vinstri valtakkinn” á bls. 57.
• Virkni miðvaltakkans er Valm. (5)
• Virkni hægri valtakkans er Nöfn (6) til að opna valmyndina Nöfn
eða að vera flýtivísir fyrir aðgerð sem þú hefur valið. Sjá „Hægri
valtakkinn” á bls. 57. Símafyrirtæki geta haft mismunandi heiti
sem hægt er að nota til að fara á vefsvæði þeirra.