Nokia 8800 Sirocco Edition - Skilaboð skrifuð og send 

background image

Skilaboð skrifuð og send

Þráðlausa símkerfið kann að takmarka stærð MMS-skilaboða. Ef myndin
sem bætt er inn fer yfir þessi mörk getur tækið minnkað hana þannig að hægt
sé að senda hana með MMS.

1. Veldu Valm. > Skilaboð > Búa til skilaboð > Margmiðlun.

2. Sláðu inn skilaboðin.

background image

S k i l a b o ð

32

Síminn styður margmiðlunarboð sem innihalda margar síður
(skyggnur). Skilaboð geta innihaldið nokkrar skyggnur. Hver
skyggna getur innihaldið texta, eina mynd, eitt hljóðinnskot, eitt
dagbókaratriði og eitt nafnspjald, eða texta og hreyfimynd. Skilaboð
geta aðeins innihaldið eitt dagbókaratriði og eitt nafnspjald. Hver
skyggna getur innihaldið texta, eina mynd og eitt hljóðinnskot, eða
texta og hreyfimynd. Til að setja skyggnu inn í skilaboð skaltu velja
Set. inn > Skyggnu; eða velja Valkost. > Setja inn > Skyggnu.

Til að setja skrá inn í skilaboðin skaltu velja Set. inn eða Valkost. >
Setja inn.

Hægt er að fá myndir og hreyfimyndir í Gallerí eða taka þær beint úr
myndglugganum; veldu þá Valkost. > Setja inn > Mynd > Ný mynd
eða Valkost. > Setja inn > Myndinnskot > Nýtt myndinnsk..

3. Til að skoða skilaboðin áður en þau eru send skaltu velja Valkost. >

Skoða áður.

4. Til að senda skilaboðin skaltu velja Valkost. > Senda eða styðja

á hringitakkann. Sjá „Skilaboð send” á bls. 32.

5. Sláðu inn númer viðtakanda í Til: -reitinn. Til að sækja símanúmer

í Tengiliðir skaltu velja Bæta v. > Tengiliður. Ef senda á skilaboð
til margra viðtakenda skal bæta einum við af öðrum. Til að senda
skilaboðin til hóps af fólki skaltu velja Tengiliðahópur og svo
tiltekinn hóp. Til að sækja þá tengiliði sem nýlega hafa fengið
skilaboð frá þér skaltu velja Bæta v. > Notaðir nýlega. Til að
sækja tengiliðina úr hringiskránni skaltu velja Bæta v. >
Opna notkunarskrá.

Til að senda margmiðlunarboð á netfang skaltu slá það inn
í Til: -reitinn.