
Margmiðlunarboð
Skilaboðastillingarnar hafa áhrif á það hvernig margmiðlunarboð
eru send, móttekin og skoðuð.
Hægt er að fá stillingarnar fyrir margmiðlunarboðin sendar sem
stillingaboð. Sjá „Stillingaþjónusta” á bls. 11. Stillingarnar má einnig
færa inn handvirkt. Sjá „Samskipan” á bls. 64.

S k i l a b o ð
47
Veldu Valm. > Skilaboð > Skilaboðastillingar > Margmiðlunarboð
og úr eftirtöldum valkostum:
Tilkynningar um skil > Já — til að láta símkerfið senda skilatilkynningar
um skilaboðin þín (sérþjónusta).
Myndastærð (margmiðlun) — til að ákvarða sjálfgefna stærð mynda
í margmiðlunarboðum.
Sjálfgefin tímasetning skyggna — til að tilgreina sjálfgefinn tíma á milli
skyggna í margmiðlunarboðum.
Gera móttöku fyrir margmiðlun virka — til að leyfa eða banna móttöku
margmiðlunarboða skaltu velja Já eða Nei. Ef Í heimasímkerfi er valið
er ekki hægt að taka við margmiðlunarboðum utan heimasímkerfisins.
Sjálfgefin stilling margmiðlunarboðaþjónustunnar er yfirleitt
Í heimasímkerfi.
Margmiðlunarboð á leiðinni — til að leyfa sjálfkrafa móttöku
margmiðlunarboða, handvirka móttöku eftir tilkynningarboð eða
hafna móttöku. Þessi stilling er ekki sýnd ef Gera móttöku fyrir
margmiðlun virka er stillt á Nei.
Leyfa auglýsingar — til að taka við eða hafna auglýsingum. Þessi
stilling sést ekki ef Gera móttöku fyrir margmiðlun virka er stillt á Nei
eða Margmiðlunarboð á leiðinni er stillt á Hafna.
Stillingar samskipana > Samskipun — eingöngu eru sýndar þær
samskipanir sem styðja margmiðlunarboð. Veldu Sjálfgefnar eða
Eigin stillingar fyrir val á þjónustuveitu fyrir margmiðlunarboð.
Veldu Áskrift og þjónustureikning fyrir margmiðlunarboð sem
er innifalinn í virku stillingunum.