Tölvupóstur lesinn og honum svarað
Mikilvægt: Fara skal með gát þegar skilaboð eru opnuð. Tölvupóstboð
geta innihaldið skaðlegan hugbúnað eða skaðað tölvuna eða tækið
á einhvern annan hátt.
1. Veldu Valm. > Skilaboð > Tölvupóstur > Innhólf, nafn reikningsins
og skilaboð sem óskað er eftir.
2. Á meðan þú ert að lesa póstinn skaltu velja Valkostir til að sjá þá
valkosti sem eru í boði.
3. Til að svara tölvupósti skaltu velja Svara > Upphaflegum texta
eða Auðu skeyti. Veldu Valkostir > Svara öllum ef þú vilt senda
tölvupóstinn til margra viðtakenda. Staðfestu eða breyttu
netfanginu og titlinum og skrifaðu síðan svarið.
4. Sendu póstinn með því að velja Senda > Senda núna.