Nokia 8800 Sirocco Edition - Textaskilaboð (SMS)

background image

Textaskilaboð (SMS)

Með SMS-þjónustunni er hægt að senda og taka við samsettum
skilaboðum (sérþjónusta) sem geta innihaldið myndir.

Vista verður númer skilaboðamiðstöðvarinnar áður en hægt er að senda
textaskilaboð, myndskilaboð eða tölvupóst. Sjá „Skilaboðastillingar”
á bls. 45.

Upplýsingar um framboð á SMS-tölvupóstþjónustu og áskrift má fá
hjá þjónustuveitunni. Upplýsingar um vistun tölvupóstfanga í Tengiliðir,
sjá „Vistun númera, texta eða mynda” á bls. 49.

Tækið styður sendingu á textaboðum sem eru lengri en sem nemur
lengdartakmörkunum á stökum skilaboðum. Lengri textaboð verða send
í röð í tvennum eða fleiri boðum. Þjónustuveitan tekur hugsanlega gjald í
samræmi við það. Stafir sem nota kommur eða önnur tákn og stafir úr sumum
tungumálakostum, eins og kínversku, taka meira pláss sem takmarkar þann
fjölda stafa sem hægt er að senda í einum skilaboðum.

Vísir efst á skjánum sýnir heildarfjölda stafa sem eftir er og fjölda skilaboða
sem þarf að senda. 673/2 merkir t.d. að 673 stafir eru eftir og að skilaboðin
verða send sem tvenn raðskilaboð.

background image

S k i l a b o ð

30