
■ Tengiliðir fluttir eða afritaðir
Hægt er að flytja eða afrita tengiliði úr minni símans yfir í minni
SIM-kortsins eða öfugt. Minni SIM-kortsins getur vistað nöfn með
einu símanúmeri tengdu við þau.
Til að flytja eða afrita einn tengilið í einu skaltu velja Valm. >
Tengiliðir > Nöfn. Skrunaðu að tengiliðnum og veldu Valkost. >
Færa tengilið eða Afrita tengilið.
Til að flytja eða afrita merkta tengiliði skaltu velja Valm. > Tengiliðir >
Nöfn. Skrunaðu að tengilið og veldu Valkost. > Merkja. Merktu alla
aðra tengiliði og veldu Valkost. > Færa merkta eða Afrita merkta.
Til að flytja eða afrita alla tengiliðina skaltu velja Valm. > Tengiliðir >
Færa tengiliði eða Afrita tengiliði.