■ Öryggisstillingar
Þegar öryggisaðgerðir sem takmarka símtöl eru í notkun (svo sem útilokun,
lokaður notendahópur og fast númeraval) getur samt verið hægt að hringja
í opinbera neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.
Veldu Valm. > Stillingar > Öryggisstillingar og úr eftirfarandi
valkostum:
Krefjast PIN-númers — til að láta símann biðja um PIN-númer í hvert
skipti sem kveikt er á honum. Á sumum SIM-kortum er ekki hægt að gera
þessa beiðni óvirka.
PIN2-beiðni — til að ákveða hvort PIN2-númers er krafist þegar
ákveðnar aðgerðir símans, sem PIN2-númerið ver, eru notaðar.
Á sumum SIM-kortum er ekki hægt að gera þessa beiðni óvirka.
Útilokunarþjónusta — til að takmarka símtöl í og úr símanum
(sérþjónusta). Krafist er lykilorðs vegna útilokunar.
Fast númeraval — til að takmarka úthringingar í valin símanúmer
ef SIM-kortið styður aðgerðina.
Lokaður notendahópur — til að tilgreina hóp fólks sem hægt er
að hringja í og sem getur hringt í þig (sérþjónusta).
Öryggisstig > Sími — til að stilla símann þannig að hann biðji um
öryggisnúmer í hvert skipti sem nýtt SIM-kort er sett í hann. Ef þú
velur Öryggisstig > Minni biður síminn um öryggisnúmer þegar
minni SIM-korts er virkt og þú vilt skipta yfir í annað minni.
Aðgangslyklar — til að breyta öryggisnúmerinu, PIN-númerinu,
PIN2-númerinu eða lykilorði útilokunar.
Númer í notkun — til að velja hvort PIN- eða UPIN-númerið eigi
að vera virkt.
Heimildavottorð eða Notandavottorð — til að skoða lista yfir
heimildar- og notandavottorð sem hlaðið hefur verið niður í símann.
Sjá „Vottorð” á bls. 89.
Stillingar fyrir öryggiseiningu — til að skoða Upplýsingar um
öryggiseiningu, virkja Biður um PIN fyrir öryggiseiningu eða breyta
PIN-númeri öryggiseiningar og PIN-númeri fyrir undirskrift. Sjá einnig
„Aðgangsnúmer” á bls. 10.
S t i l l i n g a r
67