Vinstri valtakkinn
Til að velja aðgerð af lista fyrir vinstri valtakkann skaltu velja Valm. >
Stillingar > Eigin flýtivísar > Vinstri valtakki.
Ef vinstri valtakkinn er Flýtival skaltu velja Flýtival í biðham til að
gera aðgerð virka og þá aðgerð sem óskað er af eigin lista yfir flýtivísa.
Til að breyta aðgerðum á flýtivísalistanum skaltu velja Valkost. og úr
eftirfarandi valkostum:
Valmöguleikar — til að bæta aðgerð á flýtivísalistann eða fjarlægja
aðgerð. Skrunaðu að aðgerðinni og veldu Merkja eða Afmerk..
Skipuleggja — til að endurraða aðgerðum á eigin flýtivísalista.
Skrunaðu að aðgerðinni sem þú vilt flytja og veldu Færa. Skrunaðu
þangað sem flytja á aðgerðina og veldu Í lagi.