Nokia 8800 Sirocco Edition - Sími

background image

Sími

Veldu Valm. > Stillingar > Símastillingar og úr eftirfarandi valkostum:

Stillingar tungumáls > Tungumál síma — til að velja skjátungumál
símans. Ef Sjálfgefið val er valið velur síminn tungumálið samkvæmt
upplýsingunum á SIM-kortinu.

Stillingar tungumáls > SIM-tungumál til að velja tungumál
fyrir USIM-kort.

Stillingar tungumáls > Tungumál raddspilunar — til að velja tungumál
fyrir raddspilun. Sjá „Raddstýrð hringing” á bls. 24 og „Raddskipanir”
á bls. 57.

Staða minnis — til að sjá hversu mikið minni er laust og hversu mikið
minni hvert atriði á listanum notar.

Sjálfvirkur takkavari — til að stilla takkaborð símans þannig að
takkarnir læsist sjálfkrafa eftir tiltekinn tíma þegar síminn er í biðham
og engin aðgerð símans í notkun. Veldu Virkur og þá geturðu stillt
biðtímann frá 5 sekúndum upp í 60 mínútur.

Öryggistakkavari — til að stilla símann þannig að hann krefjist
öryggisnúmers þegar takkavarinn er tekinn af. Sláðu inn númerið
og veldu Virkur.

Þegar takkavarinn er á getur samt verið hægt að hringja í opinbera
neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.

background image

S t i l l i n g a r

64

Opnunarkveðja — til að slá inn texta sem á að birtast í stuttan tíma
þegar kveikt er á símanum.

Val símafyrirtækis > Sjálfvirkt val — til að stilla símann þannig að hann
velji sjálfkrafa eitt af farsímakerfunum sem tiltæk eru á viðkomandi
svæði. Með Handvirkt val er hægt að velja símkerfi sem er með
reikisamning við símafyrirtækið þitt.

Staðfesta SIM- þjónustuaðgerðir — Sjá „SIM-þjónusta” á bls. 91.

Kveikir á hjálpartextum — til að velja hvort síminn sýni hjálpartexta.

Opnunartónn — til að velja hvort síminn spili eða spili ekki tón þegar
kveikt er á honum.

Flugkvaðning — til að velja hvort Virkja flugsnið? birtist í hvert skipti
sem kveikt er á símanum ef flugsnið var virkt áður en slökkt var á
tækinu. Sjá „Flugsnið” á bls. 21.