Nokia 8800 Sirocco Edition - Samskipan

background image

Samskipan

Hægt er að samskipa símann með stillingum sem þarf til að tilteknar
þjónustur virki rétt. Hér er um að ræða vafra, margmiðlunarboð,
samstillingu ytri internetmiðlara, tölvupóst og straumspilun. Þú getur

background image

S t i l l i n g a r

65

fengið stillingarnar af SIM-kortinu, sem stillingaboð frá þjónustuveitu
eða fært eigin stillingar inn handvirkt. Hægt er að vista og halda utan
um stillingar frá allt að tíu þjónustuveitum í þessari valmynd.

Upplýsingar um hvernig vista á stillingar úr stillingaboðum frá
þjónustuveitu er að finna í „Stillingaþjónusta” á bls. 11.

Veldu Valm. > Stillingar > Samskipan og úr eftirfarandi valkostum:

Sjálfgefnar stillingar samskipunar — til að sjá þjónustuveitur sem
vistaðar eru í símanum. Skrunaðu að þjónustuveitu og veldu Upplýs.
til að skoða forritin sem stillingar viðkomandi þjónustuveitu styðja.
Til að velja stillingar þjónustuveitunnar sem sjálfvaldar stillingar skaltu
velja Valkost. > Velja sem sjálfgefið; til að eyða stillingunum skaltu
velja Eyða.

Virkja sjálfgefið í öllum forritum — til að virkja sjálfvalda stillingu fyrir
forrit sem studd eru.

Helsti aðgangsstaður — til að skoða vistaða aðgangsstaði. Skrunaðu
að aðgangsstað og veldu Valkost. > Upplýsingar til að skoða nafn
þjónustuveitunnar, gagnaflytjanda og aðgangsstað pakkagagna
eða GSM-innhringinúmer.

Tengjast við þjónustusíðu — til að hlaða niður stillingum
frá þjónustuveitunni.

Stillingar fyrir stjórnanda tækis — til að leyfa eða koma í veg fyrir að
síminn taki við uppfærslum á símahugbúnaði. Það veltur á símanum
hvort þessi valkostur er í boði.

Eigin stillingar — til að bæta handvirkt við nýjum einkareikningi fyrir
ýmsar þjónustur, og til að virkja þær eða eyða þeim. Viljirðu bæta við
nýjum einkareikningi skaltu velja Bæta v.. Annars velurðu Valkost. >
Bæta við nýjum. Veldu tegund þjónustu og veldu og færðu inn hverja
þá færibreytu sem þarf. Færibreyturnar eru mismunandi eftir þeirri
þjónustutegund sem er valin. Til að eyða eða ræsa einkareikning skaltu
skruna að honum og velja Valkost. > Eyða eða Virkja.

background image

S t i l l i n g a r

66