Nokia 8800 Sirocco Edition - Þráðlaus Bluetooth-tækni 

background image

Þráðlaus Bluetooth-tækni

Þetta tæki er samhæft við Bluetooth Specification 2.0 með Enhanced Data Rate
(EDR-staðallinn) sem styður eftirfarandi snið: dial-up networking, hands-free,
headset, generic object exchange, object push, file transfer, audio/video
distribution transport protocol, generic audio/video distribution, advanced
audio distribution, audio/video control transport protocol, audio/video remote
control, SIM access. Til að tryggja samvirkni milli annarra tækja sem styðja
Bluetooth-tækni skal nota aukahluti sem eru viðurkenndir af Nokia fyrir þessa
tegund. Leita skal upplýsinga hjá framleiðendum annarra tækja um samhæfi
þeirra við þetta tæki.

Takmarkanir kunna að vera á notkun Bluetooth-tækni á sumum stöðum.
Kanna skal það hjá yfirvöldum á staðnum eða þjónustuveitunni.

Aðgerðir sem nota Bluetooth-tækni eða leyfa slíkum aðgerðum að keyra
í bakgrunni meðan aðrar aðgerðir eru notaðar krefjast aukinnar rafhlöðuorku
og minnka endingu rafhlöðunnar.

Með þráðlausri Bluetooth-tækni er hægt að tengja símann við samhæft
Bluetooth-tæki sem er í allt að 10 metra fjarlægð. Þar sem tæki sem
nota Bluetooth-tækni hafa samskipti sín á milli með útvarpsbylgjum
þurfa síminn og önnur tæki ekki að vera í beinni sjónlínu, enda þótt

background image

S t i l l i n g a r

59

tengingin geti orðið fyrir áhrifum vegna hindrana eins og veggja
eða truflana frá öðrum raftækjum.