
Samstilling frá miðlara
Þú verður að vera áskrifandi að samstillingarþjónustu til að nota ytri
internet-miðlara. Þjónustuveitan veitir nánari upplýsingar og lætur
þér nauðsynlegar stillingar í té fyrir þessa þjónustu. Hægt er að fá
stillingarnar í stillingaboðum. Sjá „Stillingaþjónusta” á bls. 11 og
„Samskipan” á bls. 64.
Hafirðu vistað upplýsingar á ytri Internet-miðlara skaltu samstilla
símann með því að ræsa samstillinguna úr símanum.
Veldu Valm. > Stillingar > Tengimöguleikar > Gagnaflutningur >
Samst. miðlara. Veldu Ræsir samstillingu eða Afritun hafin í samræmi
við stillingarnar.
Athugaðu að fyrsta samstilling eða samstilling eftir truflun getur tekið
allt að 30 mínútur ef tengiliðir eða dagbók eru full.