■ Stillingaþjónusta
Til að hægt sé að nota ýmsa sérþjónustu, svo sem internetþjónustur,
MMS eða samstillingu við internetmiðlara, þarf réttar stillingar í
símann. Hugsanlega er hægt að fá stillingarnar beint í stillingaboðum.
Vista þarf stillingarnar eftir að þær eru mótteknar. Þjónustuveitan
kann að láta PIN-númer í té sem þarf til að vista stillingarnar.
Nánari upplýsingar um framboð má fá hjá símafyrirtækinu,
þjónustuveitunni, næsta viðurkennda söluaðila Nokia eða á
þjónustusvæði Nokia-vefsvæðisins, www.nokia.com/support.
Þegar þú móttekur stillingaboð birtist Still. samskipunar mótteknar ....
Til að vista stillingarnar velurðu Sýna > Vista. Ef textinn
Skráðu PIN-númer fyrir stillingar: birtist skaltu slá inn PIN-númerið
fyrir stillingarnar og velja Í lagi. Upplýsingar um PIN-númerið fást
hjá þjónustuveitunni sem sendir stillingarnar. Hafi engar stillingar
verið vistaðar áður vistar síminn þessar stillingar og gerir þær að
sjálfgefnum stillingum. Annars birtist spurningin Virkja vistaðar
samskipanastillingar?.
Veldu Hætta eða Sýna > Fleygja til að fleygja mótteknum stillingum.
Upplýsingar um hvernig breyta má stillingunum er að sjá í „Samskipan”
á bls. 64.
A l m e n n a r u p p l ý s i n g a r
12